UDN gekkst fyrir Hólafjöri á Reykhólum á föstudag og laugardag. Markmiðið með Hólafjöri er að gefa krökkum á sambandssvæðinu færi á samveru og samvinnu og tóku 34 krakkar þátt í fjörinu að þessu sinni. Komið var í Reykhólaskóla um miðjan dag á föstudag og heimferð var sólarhring síðar. Margt var brallað á þessum tíma sem leið þó afar fljótt. Hrefna Hugós hjúkrunarfræðingur kom í heimsókn og ræddi við krakkana um samskipti kynjanna, Egill Sigurgeirsson hjálpaði til við þrautakeppni í sundlauginni á föstudagskvöld og svo var diskó og bæði teflt og spilað fram eftir nóttu. Allir gistu síðan á heimavistinni og í kennslustofu. Reykhólahreppur lánaði aðstöðuna í skólanum.
Smellið á myndirnar til að stækka þær.