|
Fyrsta mót ársins var haldið á Laugum í Sælingsdal 14. janúar. Þarna var búið að sameina Bikarglímu Íslands og 2. umferð í Meistaramóti Íslands í eitt mót. Margir starfsmenn mótsins komu frá GFD og þakkar félagið fyrir góða aðstoð. Tveir keppendur frá GFD mættu á mótið. Svana Jóhannsdóttir varð Bikarmeistari í bæði opnum flokki og +65 kg flokki. Sólveig Jóhannsdóttir varð önnur í + 65 kg flokki og 4. sæti í opnum flokki.
Þann 4. febrúar var keppt í Íþróttahúsi Hagaskóla. Þar fór fram Bikarglíma Íslands 16 ára og yngri. 12 félagar GFD tóku þátt í mótinu. Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir lenti í 2. sæti í flokki stelpna 11-12 ára. Sunna Ýr Einarsdóttir komst á blað, en hún lenti í 3. sæti í 13-14 ára flokki telpna. Einnig var Heiðrún Sandra Grettisdóttir í 3. sæti í meyjaflokki 15-16 ára. Tvær sveitir kepptu fyrir GFD á Sveitaglímu Íslands 16 ára og yngri. Mótið fór fram 5. febrúar í Íþróttahúsi Hagaskóla. Sveit telpna 13-14 ára lenti í 2. sæti og sveit pilta 13-14 ára lentu í 3. sæti.
Þorramót GLÍ fór fram 18. febrúar í Reykholti. Sólveig Jóhannsdóttir var eini keppandi frá GFD og deildi 1. sætinu í +65 kg flokki með Elísabethu Patríörcu.
3. umferð Meistaramóts Íslands var haldið á Laugavatni 4. mars. Tveir keppendur kepptu fyrir GFD. Svana Jóhannsdóttir lenti í 2. sæti í opnum flokki og 1. sæti í +65 kg flokki. Sólveig Jóhannsdóttir varð í 4. sæti í opnum flokki og 3. sæti í +65 kg flokki. Lokastaða Meistaramóts Ísland 2005-2006 varð ljós. Svana varð í 3. sæti í báðum flokkum, og Sólveig í 2. sæti í +65 kg flokki og 4. sæti í opna flokknum. Í heildarstigakeppni kvenna varð lið GFD í 2. sæti.
Helgina 18-19 mars var haldið Grunnskólamót GLÍ og Meistaramót Íslands 16 ára og yngri. Mótið fór fram í Reykjahlíð. Sjö keppendur kepptu fyrir hönd GFD. Magnús Böðvarsson var Grunnskólameistari 5. bekkjar. Í 7. bekk stráka lenti Ívar Brynjarsson í 2. sæti og Hermann Bjarnason í 3. sæti. Sunna Ýr Einarsdóttir varð í 3. sæti hjá 7. bekk telpna. Krakkarnir stóðu sig einnig vel á Meistaramótinu. Þar má helst nefna að Magnús Böðvarsson lenti í 3. sæti í flokki stráka 11-12 ára.
Stærsta mót ársins Íslandsglíman fór fram á Akureyri þann 1. apríl. Glímukóngur Íslands var Jón Birgir Valsson KR, og Glímudrottning Ísland var Svana Jóhannsdóttir GFD. Sólveig Jóhannsdóttir lenti í þriðja sæti eftir æsi spennandi keppni. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhendi Svönu Freyjumenið.
Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Laugum í Reykjadal. Tveir keppendur frá UDN kepptu. Magnús Böðvarsson varð 3. sæti 11-12 ára flokki stráka og Elín Böðvarsdóttir varð í fjórða sæti í flokki telpna 13-14 ára.
Sólveig Jóhannsdóttir var eini keppandi GFD í fyrstu umferð Meistaramóts Íslands 2006-2007 sem haldið var á Reyðarfirði 18. nóvember. Þar sigraði Sólveig opna flokkinn og lenti í öðru sæti í +65 kg flokki.
Úrvalshópur GLÍ kemur saman tvisvar á ári. Hópurinn saman stendur af ungu fólki 15-20 ára. Þrír þjálfarar hafa umsjón með hópnum, Svana Jóhannsdóttir, Snær Seljan Þóroddsson og Pétur Eyþórsson. Efnilegur hópur er þar á ferð, en Arnar Freyr Þorbjörnsson frá GFD er í hópnum ásamt krökkum frá ÚÍA, KR, HSK, Herði, Ármanni og HSÞ.
Á lokahófi GLÍ voru veitt verðlaun þeim sem stóðu sig best á keppnistímabilinu 2005-2006. Þar fékk Svana Hrönn Jóhannsdóttir verðlaun sem besta glímukonan. Einnig í lok hvers árs kýs stjórn GLÍ glímukonu og glímumann ársins. Þar var Svana valin glímukona ársins, og tók hún við verðlaununum á Íþróttamanni ársins á Grand Hóteli.
Nokkrar glímusýningar voru haldnar á síðasta ári. Systurnar Svana og Sólveig sýndu á Leifshátíð, og fengu aðstoð frá yngri krökkunum. Svo í júní byrjun fóru þær til Noregs ásamt þremur öðrum og sýndu glímu á víkingahátíð sem haldin er rétt hjá Stavanger.
Á Bessastöðum var boðið upp á glímusýningu sem nefnd var forsetaglíman. Svana og Sólveig sýndu þar ásamt Jón Birgi Valssyni og Pétri Eyþórssyni. Einnig var stofnaður Glímuflokkur Íslands. Svana var ein af níu glímumönnum og glímukonum sem tóku þátt í sýningum á vegum flokksins. Flokkurinn fór til Danmerkur og Svíþjóðar og sýndi þar.
Jóhann Pálmason hélt reglulegar æfingar fyrir krakkana yfir veturinn, en Sólveig Rós Jóhannsdóttir sá um æfingarnar um sumarið.
Fyrir hönd GFD
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
|