Forsíða

Fréttabréf apríl ´09 PDF Prenta Rafpóstur
Fréttabréf UDN  - maí 2009                                                                                                             Ábm. Stjórn UDN. 
Sambandsþing 

88.sambandsþing Ungmennasambands Dalamanna og N-Breiðfirðinga var haldið í grunnskólanum í Búðardal þann  30. mars 2009.   Starfsemi sambandsins var fjölbreytt að venju og hin hefðbundnu mót haldin, s.s. sundmót, 3 kvöldmót í frjálsum íþróttum, knattspyrnumót og svo íþróttahátíð.  Nokkuð stór hópur fór á Unglingalandsmót í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina og var árangur þar alveg með ágætum. Badmintonæfingar voru að Laugum og skákæfingar í Búðardal.  Laugafjör var tvisvar haldið, en þar koma börn í 5. – 10. bekkjum í Dölum og Reykhólum saman og dvelja í 1 sólarhring.  Tilgangurinn er að efla samheldni hópsins og hafa gaman og hefur það ávallt tekist prýðilega. Dómaranámskeið í frjálsum íþróttum var haldiðí Búðardal í júní. Helstu niðurstöður ársreiknings eru að sambandið var rekið með hagnaði uppá kr. 230.472.- á árinu 2008 en áætlun gerir ráð fyrir 50.000 kr. hagnaði á árinu 2009.  Eignir sambandsins eru að verðmæti rétt tæpar 4.000.000.- kr en skuldir rétt tæpar 300.000.- kr.  

Minnum á heimasíðu sambandsins www.udn.is 
Íþróttamaður ársins 2008. 
1. sæti             Svana Hrönn Jóhannsdóttir     34 atkvæði
2. sæti             Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir   33 atkvæði
3. sæti             Sólveig Rós Jóhannsdóttir       27 atkvæði.  
Kosning nefnda og ráða. 

Stjórn UDN
Finnbogi Harðarson – formaður
Herdís E. Matthíasd. – varaformaður
Eygló Kristjánsdóttir – gjaldkeri
Svanborg Guðbjörnsdóttir – ritari
Baldur Gíslason – meðstjórnandi 
Varamenn:
Herdís Reynisdóttir
Jörgen Nilsson 
Skoðunarmenn reikninga
Svala Svavarsdóttir
Anna Berglind Halldórsdóttir 
Sundráð
Ingvar Samúelsson
Ingibjörg Smáradóttir
Steinunn Matthíasdóttir  
Frjálsíþróttaráð
Jóhanna Sigrún Árnadóttir
Herdís Reynisdóttir
Rebekka Eiríksdóttir 
Knattspyrnuráð
Ingvar Kristján Bæringsson
Jón Egill Jónsson
Baldur Gíslason 
Badmintonráð
Ingibjörg Jóhannsdóttir - formaður
Brynjólfur Gunnarsson
Ásdís Kristrún Melsted 
Unglingalandsmótsnefnd
Eygló Kristjánsdóttir
Helga Guðmundsdóttir
Erla Guðbjartsdóttir

 

Sundmót 

Árlegt sundmót verður haldið seinnipart maí eða byrjun júní.  Í Grettislaug á Reykhólum að venju. Auglýsing verður send út þegar nær dregur með frekari upplýsingum um tímasetningu, greinar og skráningu.  

 

 

 

 

 

Búningar 

Guðrún Guðmunds ætlar að sjá um pantanir á búningum fyrir okkur frá Henson, eins og undanfarin ár.  Í boði verða; íþróttagallarnir (buxur og treyja) og frjálsíþrótta búningar (stuttbuxur og bolur).   Stærðir eru frá 86 og upp í 158, svo eru 164 (xs), 170 (s), 180 (m), 186 (L), 192 (XL) og 198 (XXL).
Nánari útfærslur er hægt að sjá á www.henson.is
eða www.udn.isíþróttavörur.      

 

NÝTT – húfur.  Þægilegar, prjónaðar með merki UDN.

Síminn hjá Guðrúnu, gsm: 865-5237,
netfang:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .

Frestur til að panta er 20.maí 2009.

 

 

 

 

 

Framkvæmdastjóri. 

UDN hefur ráðið Björgvin Gauta Bæringsson frá Saurstöðum í Haukadal í 50% starf framkvæmdastjóra í sumar, eða frá 20.maí til 15.ágúst.  Í starfinu felst að halda utan um starfsemi UDN, svo sem að skipuleggja mót og ferðir á mót.   Möguleiki er á að Björgvin Gauti taki að sér íþróttaþjálfun á Reykhólum, í Saurbænum og í Búðardal í samstarfi við aðildarfélögin á svæðinu.  Frá þessu hefur þó ekki verið gengið.   

 

 

 

Unglingalandsmót 2009.

Nú taka allir stefnuna á Sauðárkrók en þar verður 12.  Unglingalandsmót UMFÍ haldið um verslunarmannahelgina.  Unglingalandsmótin eru góð blanda af fjölbreyttri íþróttakeppni og annarri heilbrigðri afþreyingu fyrir ungt fólk. Lögð er áhersla á fjölskylduvænt umhverfi þar sem þátttakendur okkar á aldrinum 11-18 ára eru í fyrirrúmi.

Keppnisgreinar á Sauðárkróki verða: frjálsíþróttir, knattspyrna, körfubolti, sund, skák, glíma, golf, hestaíþróttir og mótocross.    Samhliða þessum greinum verða svokallaðar kynningargreinar en þar verður þátttakendum boðið að prófa ýmsar aðrar greinar.

 

Sauðárkrókur er svo sannarlega staður sem vert er að heimsækja. Um verslunarmannahelgina mun hann iða af lífi ungmenna og fjölskyldna þeirra.

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 júní 2009 )
 
< Fyrri   Næsti >

Forsíða
Æfingaplan
Mót
Námskeið
UDN
Íþróttavörur
Tenglar
Aðildarfélög
Afturelding
Dögun
Glímufélagið
Golfklúbburinn
Hestamannafélagið Glaður
Hestamannafélagið Kinnskær
Óli Pá
Stjarnan
Æskan
 
Stjórnborð UDN.is
Stjórn
UDN
Miðbraut 11
370 Búðardalur
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Kt: 670269-0789