Forsíða

Fréttabréf júní 09 PDF Prenta Rafpóstur

Annað fréttabréf UDN er komið út.

Fréttabréf UDN  - júni 2009                                                                                                             Ábm. Stjórn UDN. 
Landsmót UMFÍ.
Landsmót UMFÍ verður haldið á Akureyri dagana 9. – 12. júlí 2009.  Sem fyrr eru allir félagsmenn UND kvattir til að taka þátt í þeim keppnisgreinum sem þeir treysta sér til.  Sérstaklega þeir sem ekki hafa áunnið sér keppnisrétt í neinni grein, að skrá sig frekar í þær greinar sem hægt er, svo sem hinar ýmsu starfsgreinar; dráttarvélaakstur, gróðursetning eða pönnukökubakstur svo eitthvað sé nefnt. Úr reglugerð um Landsmót UMFÍ.II. Um þátttökurétt.....3. grein  Þeir einir hafa rétt til keppni sem eru félagar í ungmennafélagi eða í íþróttafélagi og uppfylla skilyrði viðkomandi sérsambands til keppni með félagi í ákveðinni íþróttagrein þar sem það á við. Keppnislið skulu vera sambandsaðilar UMFÍ og íþróttabandalög. Íþróttabandalög njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og sambandsaðilar UMFÍ. 4. grein Senda má að hámarki 4 keppendur í hverja einstaklingsgrein og eina sveit í boðsund, boðhlaup og eitt lið í liðakeppni. Hver keppandi má keppa að hámark í 5 einstaklingsgreinum og tveimur boðgreinum í viðkomandi íþróttagrein. Almenningur greiðir ekki aðgangseyri að keppni
og öðrum viðburðum á Landsmótinu
 
Keppnisgreinar á landsmóti á Akureyri eru m.a.:

 


 

Sjá nánar á:     http://umfi.is/umfi/landsmot/  
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. 
Æfingaplan sumar 2009. 
Aðildarfélög UDN hafa öll ráðið Björgvin Gauta sem þjálfara barna og unglinga í frjálsum íþróttum í sumar.
mánudagur Kl. 17:30 Búðardal Kl 20:00 Fótbolti kk Bdl.
þriðjudagur Kl 16:30 Tjarnarlundi Kl. 19:00 Reykhólar
miðvikudagur Kl. 17:30 Nesoddi    
fimmtudagur Kl. 16:30 Reykhólar Kl 20:00 Fótbolti kk Bdl.
  

 

 

 

 

 

Kvöldmót 18.júní
Fyrsta kvöldmót sumarsins fer fram í Búðardal fimmtudaginn 18.júni kl. 18:30.  Keppnisgreinar verða hefðbundnar: 60m hlaup, langstökk, boltakast, 100m hlaup og kúluvarp.  Skráning á staðnum.


 

Sundmót 
Árlegt sundmót verður haldið í Grettislaug
mánudaginn 15.júní kl. 17:30
Keppt verður í eftirfarandi flokkum/greinum.


 

 8 ára og yngri.     25 m bringusund 
9-10 ára.             25 m bringusund,  25 m baksund 
11-12 ára.          50 m bringusund, 25 m baksund, 25 m skriðsund 
13-14 ára.          50 m bringusund, 50 m baksund,100 m bringusund, 25 m skriðsund 
15-16 ára.          50 m bringusund, 50 m baksund,  200 m bringusund, 50 m skriðsund 
17 ára og eldri   50 m bringusund, 50 m baksund, 200 m bringusund, 50 m skriðsund,
25 m flugsund, 100 m fjórsund (4X25 m) flugsund-baksund-bringusund-skriðsund.

4x50 m boðsund


 

 Skráning hjá Ingibjörgu í síma 848-4964.  Afturelding mun selja pylsur og Svala á vægu verði á staðnum. 


Þátttökugjöld á mót utan héraðs. 

Þátttökugjöld á mót utan héraðs. 

 

Á fundi þann 4. júní síðast liðinn ákvað stjórn UDN að greiða þátttökugjöld á mótum utan héraðs, fyrir félagsmenn.  Til þess að þetta geti orðið þarf skráning á mót að fara fram í gegnum framkvæmdastjórann eða aðra þá sem valdir eru til að halda utan um sérstakar skráningar.   Til að mynda mun UDN greiða þátttökugjald kr. 5.500 (11ára og eldri) og kr 3.500 (10 ára og yngri) á Gogga Galvaska sem haldið er í Mosfellsbæ þann 19. – 21. júni.  Mótið er ætlað börnum að 14 ára aldri.  Skráning fyrir Gogga er til 15.júní. 

 

Atburðadagatal 2009.

Júní Júlí Ágúst
15. Sundmót  áReykhólum 4.-5. Meistaramót Kópavogi. 1.-2. Ungl.landsmót á Sauðárkróki
18. Kvöldmót í Búðardal 9.-12. Landsmót UMFÍ á Akureyri 11. Kvöldmót í Búðardal
19.- 21. Goggi galvaski 14. Kvöldmót í Búðardal 15.-16. Meistaramót 11-14 Höfn
22.- 26. Frjálsíþróttaskóli í Borganesi (11-18 ára) 25. -26. Íþróttahátíð UDN 29.- 30. Meistaramót 15-22 Kópavogi
    31. – 2. Unglingalandsmót 29. Maraþonhlaup í Reykhólahreppi

 Minnum á vefsíðu sambandsinswww.udn.is

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 24 júní 2009 )
 
< Fyrri   Næsti >

Forsíða
Æfingaplan
Mót
Námskeið
UDN
Íþróttavörur
Tenglar
Aðildarfélög
Afturelding
Dögun
Glímufélagið
Golfklúbburinn
Hestamannafélagið Glaður
Hestamannafélagið Kinnskær
Óli Pá
Stjarnan
Æskan
 
Stjórnborð UDN.is
Stjórn
UDN
Miðbraut 11
370 Búðardalur
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Kt: 670269-0789