| Skráning á unglingalandsmót |
|
|
|
|
Skráning er hafin fyrir unglingalandsmótið 2009 sem haldið verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.
Á fundi þann 4. júní síðast liðinn ákvað stjórn UDN að greiða þátttökugjöld á mótum utan héraðs, fyrir félagsmenn, þannig að UDN mun greiða þátttökugjöld keppenda á Unglingalandsmóti.
Skráningar verði tilkynntar til Björgvins Gauta, framkvæmdastjóra UDN, á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 691 1879 – fyrir 17.júlí 2009. Einnig væri gott að þeir sem ætla með en ekki að keppa láti vita svo hægt sé að gera ráð fyrir öllum á sameiginlegum atburðum. Minnum alla þátttakendur að hafa búningana sína meðferðis fyrir skrúðgönguna á setningu mótsins, þar sem öll félög ganga fram með fána sína og fylkja liði inn á Íþróttavöllinn.
Unglingalandsmótsnefnd, fararstjórn.
Björgvin Gauti fer með okkur á mótið og ætlar hann að halda utanum keppendur eins og frekast er unnt en svo munum við, að við erum öll saman í liðinu, börn, foreldrar, systkini sem og aðrir félagsmenn. |
|
| Síðast uppfært ( laugardagur, 11 júlí 2009 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|
|
|
| Nýjustu fréttir |
|---|
| Vinsælt efni |
|---|
| RSS flæði |
|---|