Stjórn
Fréttir
Síđasta kvöldmót sumarsins og unglingalandsmót
| Síđasta kvöldmót sumarsins og unglingalandsmót |
|
|
|
|
Síðasta kvöldmót sumarsins fer fram í kvöld 27. júlí í Búðardal. Keppt verður í : 8 ára og yngri: 60m hlaup, langstökk og boltakast 9-10 ára: 60m hlaup, langstökk og boltakast 11-12 ára: Hástökk, spjótkast, 60m hlaup og kúluvarp 13-14 ára: hástökk, spjótkast, 100m hlaup og kúluvarp 15-16 ára: hástökk, spjótkast, 100m hlaup og kúluvarp 17 ára og eldri: hástökk, kringlukast, 100m hlaup og kúluvarp
Skráning hefst kl 18:00 á staðnum en keppni hefst 18:30
Um helgina verður Unglingalandsmótið haldið í Borgarnesi. Skráningu er lokið og sendir UDN 29 keppendur til leiks þetta árið. Flestir eru skráðir í knattspyrnu og frjálsar en einnig eru keppendur í glímu, sundi og golfi. Keppnin byrjar fimmtudaginn en þá er aðeins keppt í körfubolta. Keppni í öörum greinum hefst síðan kl. 8:00 á föstudagsmorgun. Grófa dagskrá er hægt að sjá hérna http://www.umfi.is/umfi09/unglingalandsmot/dagskra/dagskra_unglingalandsmots/ . Mótssetningin er á föstudaginn kl. 20:00 og hvetjum við alla til að mæta og taka þátt í göngunni inn á völlinn og þá er líka um að gera að mæta í búningum UDN. Stefnt er að því að hafa opið grill á föstudags eða laugardagskvöldið þar sem félagsmenn geta komið með eitthvað á grillið og átt smá stund saman. |
|
| Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 27 júlí 2010 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|
|
|
| Nýjustu fréttir |
|---|
| Vinsćlt efni |
|---|
| RSS flćđi |
|---|