Forsíða arrow Stjórn arrow Fréttir arrow Fréttabréf júlí 07

Fréttabréf júlí 07 PDF Prenta Rafpóstur

 

Kvöldmót UDN 

Annað kvöldmótið í ár verður haldið í Búðardal 10. júlí nk. Skráning er á

staðnum og hefst kl. 18:00. Keppni hefst kl: 18:30. Mætið tímanlega.

Keppnisgreinar verða: 400m hlaup, 800 m hlaup,
langstökk, boltakast (yngri), spjótkast (eldri). 

Munið eftir því að stigahæstu
krakkarnir fá bikar í lok sumarsins.
 
 

Meistaramót Íslands 12-14 ára
 

Meistaramót Íslands 12-14 ára, verður haldið í Borgarnesi dagana

14.-15. júlí nk. Foreldrar greiða þátttökugjaldið sem er 500 kr fyrir
hverja grein en boðhlaupssveit er 1.000 kr.

Keppnisgreinar eru:

Stákar og stelpur 12 ára (f. 1995): 60m, 800m, langstökk,hástökk, 

kúluvarp (2,0 kg), spjótkast (400 g) og 4x100m boðhlaup.

Piltar og telpur 13 ára – 14 ára (f. 1994-1993): 100m, 800m,

80m grind,  hástökk, langstökk, kúluvarp (3,0 kg), spjótkast (400 g)

og 4x100m boðhlaup. 

Síðasti skráningardagur er 10. júlí 2007. Sendið skráningar á

tölvupósti til Margrétar á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða hringið í síma 847-9974. 

Meiri upplýsingar um mótið er að finna á fri.is undir “mótaskrá”.

 

Unglingalandsmót UMFÍ 

Unglingalandsmótið verður á Höfn í Hornafirði dagana 3. - 5. ágúst nk.

Skráningar berist til Margrétar á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það fyrir 25. júlí nk.

Keppnisgreinar eru: 

Frjálsar íþróttir 11-12 ára  (60m, 600m,
4x100m, langstökk, hástökk, kúluvarp og spjótkast).  
Frjálsar íþróttir 13-18 ára (100m, 800m, 4x100m, langstökk,
hástökk, kúluvarp og spjótkast). 
Sund   (50m og 100m bringusund, 50m og 200m skriðsund,
50m baksund, 50m flugsund, 200m fjórsund, 4x50m skriðsund
og 4x50m fjórsund).
Hestaíþróttir (fjórgangur og tölt).
Glíma, Skák, Golf, Knattspyrna, Körfuknattleikur,
 Krakkablak og Mótorcross
 
Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar sem
börn og unglingar á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum
íþróttagreinum. Samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu,
leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Tjaldsvæðin eru gjaldfrjáls og í göngufæri við keppnissvæðin. 
Átjaldsvæðum verður aðgengi að heitu og köldu vatni auk rafmagns
(ótakmörkuðafnot af rafmagni alla helgina kosta kr. 1.000).
Skráningargjald fyrir keppendur er 5.500 kr. og það veitir rétt til
keppni að vild. Stefnt er að því að UDN greiði a.m.k. 50% af
skráningargjaldi fyrir félagsmenn sína sem mæta til keppni.

 

Fjölmennum með börnum okkar á frábæra fjölskylduskemmtun.
 
Allt fjölskyldufólk er velkomið á Landsmótið. Þátttaka í íþróttakeppni
er ekki skilyrði.

__________________________________________________________________________

UDN hefur opnað heimasíðu udn.is og þar hafa verið settar inn ýmsar
upplýsingar. Vefurinn er ennþá í þróun og það er undirfélagsmönnum
sambandsins komið hvernig hann virkar. Guðrún Guðmundsdóttir ritari
UDN er umsjónarmaður síðunnar og geta sambands-aðilar komið
upplýsingum og tilkynningum til hennar á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .
 
Nú þegar hafa helstu mót verið skráð inn á heimasíðuna, en þó er
dagsetningÍþróttahátíðarinnar ekki fullfrágengin ennþá. Úrslit allra
innanhéraðsmótaverður að finna þar (sundmótið komið inn) og þar 
verður einnig sagt frá afrekum okkar manna á öðrum mótum eftir
því sem við fáum upplýsingar þar um til okkar.

 

Þar sem ekki tókst að ráða framkvæmdastjóra fyrir sambandið í sumar þá
hefur starfið ekki alvegverið í föstum skorðum það sem af er. En frá 4. júlí
og út sumarvertíðina hefurMargrét Jóhannsdóttir gjaldkeri UDN verið fengin
til að sinna framkvæmdastjórastarfinu. Til að setja sig í samband við hana
er að senda póstá Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 847-9974.
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 14 nóvember 2007 )
 
< Fyrri   Næsti >

Forsíða
Æfingaplan
Mót
Námskeið
UDN
Íþróttavörur
Tenglar
Aðildarfélög
Afturelding
Dögun
Glímufélagið
Golfklúbburinn
Hestamannafélagið Glaður
Hestamannafélagið Kinnskær
Óli Pá
Stjarnan
Æskan
 
Stjórnborð UDN.is
Stjórn
UDN
Miðbraut 11
370 Búðardalur
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Kt: 670269-0789